top of page
dolorin.jpg

Við hverju er Dolorin Junior notað?

Dolorin Junior er ætlað til meðferðar við vægum til miðlungs miklum verkjum, hálsbólgu (að frátalinni eitlabólgu) og vægum til miðlungs miklum höfuðverk.
Dolorin Junior er einnig ætlað til meðferðar við hita sem varir í 3 daga eða skemur og sem meðferð við einkennum kvefs og flensulíkum einkennum.

Dolorin Junior

Dolorin Junior er fáanlegt sem endaþarmsstílar í styrkleikunum 125 mg (fyrir ungabörn) og 250 mg (fyrir börn).

Einnig er Dolorin Junior fáanlegt í 200 ml. mixtúru - 24 mg/ml.

Virka efnið í Dolorin Junior er paracetamól, sem er þekkt fyrir verkjastillandi og hitalækkandi verkun sína.

Dolorin_instagram_2.jpg
Dolorin.png

Hvernig nota á Dolorin Junior

Alltaf skal nota lyfið nákvæmlega eins og lýst er í fylgiseðli eða eins og læknirinn eða lyfjafræðingur hefur mælt fyrir um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Hafi læknir ekki sagt fyrir um aðra notkun eru eftirfarandi skammtar aðeins leiðbeinandi fyrir gjöf:

Dolorin Junior 250 mg stílar
Börn (þyngri en 10 kg): Einn 250 mg stíll allt að 4 sinnum á sólarhring.
Dolorin Junior 125 mg stílar
Ungabörn (frá 3 mánaða aldri): Einn 125 mg stíll allt að 4 sinnum á sólarhring

Dolarin junior mixtúra front.png

Pakkningar Dolorin Junior mixtúru, lausnar, innihalda mæliskeið til að auðvelda nákvæma skömmtun.

Mæliskeiðin mælir 5 ml (120 mg af paracetamóli) eða 2,5 ml (60 mg af paracetamóli) af lausn.

Börn
- 3 mánaða til 1 árs: 2,5 ml til 5 ml (1/2 til 1 mæliskeið), allt að 4 sinnum á sólarhring.
- 1 árs til 6 ára: 5 ml til 10 ml (1 til 2 mæliskeiðar), allt að 4 sinnum á sólarhring.
- 6 ára til 12 ára: 10 ml til 20 ml (2 til 4 mæliskeiðar), allt að 4 sinnum á sólarhring.
Fullorðnir: 20 ml (4 mæliskeiðar), allt að 6 sinnum á sólarhring

Skammtatafla

Þú færð Dolorin Junior í öllum helstu apótekum

60530-1497526146.png
sitelogo.png
logo-Einfalt.png
logo-1.png
ISLANDSAPOTEK_standandi_lit.jpg

Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is

bottom of page